Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun, eignarhaldi og rýmisnúmerum vegna gerðar
eignarskiptasamnings, þannig að íbúð 0003 verður íbúð 0001 og rými sem áður voru í sameign, rými
0002, sem áður var lesstofa, verður geymsla og tilheyrir íbúð 0001 og rými 0001 sem áður var
barnapössun verður nú geymsla 0016, auk andyris með snyrtingu og eldhúskrók sem tilheyrir íbúð
0103 í íbúðarhúsi á lóð nr. 83 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afrita aðaluppdráttar samþykktum 30. desember 1993.
Gjald 15.400.