Laugarásvegur 63
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 364
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. mars 2025 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum stoðvegg á lóðarmörkum að lóð nr. 59, pergólu og steyptum heitum potti á steyptri verönd við einbýlishús á lóð nr. 63 við Laugarásveg. Erindið var grenndarkynnt frá 29. júlí 2025 til og með 27. ágúst 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. desember 2025.
Svar

Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2025, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.