Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna skíðasvæðisins við Ártúnsbrekku. Í breytingunni sem lögð er til felst að setja skilmála vegna snjóframleiðslu innan skilgreindrar skíðabrekku í Ártúnsbrekku, að afmarka byggingarreit umhverfis núverandi skíðahús, að bæta við þjónustuvegi og að bæta við lóð og byggingarreit fyrir veitubyggingu snjóframleiðslu, ásamt skilmálum þar um, samkvæmt uppdr. Landslags, dags. 19. nóvember 2024.
Leiðrétt bókun frá afgreiðslufund skipulagsfulltrúa 25. nóvember 2024.Rétt bókun er: Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.