Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða kynningu á aðgerðaráætlun í kjölfar kortlagningar hljóðvistar í borginni. Mikilvægt er að huga að hljóðvist í borgarlandinu og grípa til aðgerða til að draga úr hljóðmengun. Hér er þó um að ræða ófjármagnaða aðgerðaráætlun og því mikilvægt er að taka til skoðunar við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna kortlagningu hljóðvistar, enda eru hljóðvist og loftgæði meðal stærstu lýðheilsumála í nútímalegri mannlífsborg. Kortlagningin sýnir að einkabíllinn, hraði og nagladekk ásamt Reykjavíkurflugvelli eru fílarnir í herberginu; um 22.600 íbúar búa við óviðunandi hávaða og rúmlega 2.500 við beint heilsubrestsástand yfir 65 dB. Stöðugur hávaði og svifryksmengun ræna fólk lífsgæðum og valda ótímabærum dauðsföllum á hverju ári. Við áttum okkur á að þetta er arfleifð fortíðar, en við þurfum að sýna þor og breyta forgangsröðuninni. Það er óásættanlegt að hunsa ákall íbúa og vísa á lausnir eftir áratug . Skýrsla borgarinnar staðfestir að hraðalækkun um 10-20 km/klst, fækkun nagladekkja og hljóðveggir skila tafarlausum árangri og því á að grípa til þeirra strax. Setja verður heilsu og öryggi borgarbúa í fyrsta sæti. Það er okkar hlutverk.