Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. október 2024 var lögð fram fyrirspurn Karls Kvaran, dags. 1. september 2024, ásamt bréfi, dags. 1. september 2024, um að setja svalir/pall á 2. hæð hússins á lóð nr. 24 við Háteigsveg með stiga út í garð, samkvæmt tillögu SP(R)INT STUDIO, dags. 1. september 2024 og skissum á byggingarnefndarteikningum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2024. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2024.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2024.