Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er að nýju lögð fram nýju tillaga umhverfis- og skipulagssvið að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar, lóð nr. 54 við Hofsvallagötu. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á skipulagsmörkum. Innan nýja deiliskipulagssvæðisins eru skilgreindar fjórar lóðir, ný afmörkun fyrir lóð Vesturbæjarlaugar og Vesturborgar, ný lóð undir veitingavagn og ný lóð fyrir grenndarstöð, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 12. september 2024, br. 24. febrúar 2025. Tillagan var auglýst frá 17. október 2024 til og með 28. nóvember 2024. Ábendingar og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2025.