Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. ágúst 2024 var lögð fram umsókn Eignasjóðs reykjavíkurborgar, dags. 23. ágúst 2024, um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar núverandi landfyllingar í Skerjafirði/Fossvogi, samkvæmt uppdr. Borgarlínunnar, dags. 21. desember 2022, uppfærður 30. nóvember 2023. Einnig er lagt fram magntöluyfirlit Eflu, dags. í janúar 2024, og framkvæmdaáætlun, dags. 29. janúar 2024. Jafnframt eru drög að útboðs- og verklýsingu Eflu, dags. 8. mars 2024, og teikningahefti Eflu, dags. í apríl 2024. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. september 2024.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2024. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en framkvæmdaleyfið hefur verið gefið út. Leyfið verður ekki gefið út fyrr en greitt hefur verið fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.