Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. ágúst 2024 var lögð fram fyrirspurn Hallgríms Þórs Sigurðssonar, dags. 15. ágúst 2024, ásamt bréfi, dags. 14. ágúst 2024, um hækkun á mænishæð hússins á lóð nr. 80-84, setja kvisti og fjölga íbúðum á þriðju hæð um allt um 8, samkvæmt skissu á uppdrætti. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. september 2024. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. september 2024, samþykkt.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. september 2024, samþykkt.