Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. mars 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta tilhögun lóðar, fjölga bílastæðum, setja upp stoðveggi og stálgirðingar, koma fyrir gámum og steyptum hólfum fyrir jarðvegsúrgang á lóðarmörkum lóðar nr. 8 við Tunguháls, færa innkeyrslu til suðurs að lóðarmörkum lóðar nr. 2 við Tunguháls, rífa tvo kornsílóa, mhl.02 og mhl.03 og til þess að stækka með 1- 4-hæða viðbyggingu auk kjallara fyrir verkstæði, lager, skrifstofu- og starfsmannaðstöðu, meðfram austurhlið iðnaðarhúss á lóð nr. 6 við Tunguháls.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.