Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. ágúst 2024 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 24. júlí 2024, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um ökutækjaleigur, vegna umsóknar Andra Freys Hlynssonar f.h. Start Car Rental ehf. um geymslustað ökutækja að Síðumúla 29. Sótt er um að leigja út fjögur ökutæki með geymslustað á lóðinni. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. ágúst 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. ágúst 2024, samþykkt.