Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. ágúst 2024 var lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 19. júlí 2024, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um skipulagslýsingu vegna tillögu að nýju deiliskipulagi Ásbrautar í Kópavogi. Skipulagssvæðið nær yfir fjölbýlishúsalóðir 3-21 og göturými við Ásbraut. Markmið með deiliskipulagsvinnunni að endurhanna göturými Ásbrautar til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi vegfarenda í samræmi við aðalskipulag Kópavogsbæjar, samkvæmt lýsingu, dags. 12. júlí 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. ágúst 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. ágúst 2024, samþykkt.