Bergstaðastræti 50B
Bergstaðastræti 50B
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1176
24. september, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að tveir gluggar hafa verið síkkaðir, nýjar tröppur gerðar á suðurhlið, allir gluggar færðir í upprunalegt horf og klætt með timbri, íbúðarhús á lóð nr. 50B við Bergstaðastræti. Stækkun: 44.8 ferm., 91,2 rúmm. Eftir stækkun: 162,7 ferm., 470,3 rúmm. Erindi fylgir húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 23. september 2024.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis.
Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á
verkið né ábyrgðaraðilar.