Álfaland 15
Álfaland 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1176
24. september, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061548 með því að byggja viðbyggingu til suðurs, breyta innra skipulagi og gera 4 íbúðir í húsi á lóð nr. 15 við Álfaland. Stækkun: 28,8 ferm., 150,1 rúmm. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar, mæliblað dags. 29. október 1981 og yfirlit breytinga dags. 25. mars 1982. Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Stækkun 28,8 ferm og 150,1 rúmm.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu þar
sem um er að ræða breytta skráningu á fjöleignarhúsi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Fyrir útgáfu byggingarleyfis þarf að berast staðfesting frá eignaskiptayfirlýsanda, á tölvupóstfang
eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is, um að vinna á nýrri eignaskiptayfirlýsingu er hafin.
Eignaskiptayfirlýsingu þarf að þinglýsa fyrir lokaúttekt.