Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. ágúst 2024 var lögð fram umsókn
Ölduvarar ehf.
, dags. 22. júlí 2024, um breytingu á deiliskipulagi neðan Sléttuvegar vegna Skógarvegar 4 og 10, lóð nr. 25 við Sléttuveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að færa byggingarreiti fyrir djúpgáma og nýta tvö bílastæði sem snúningsstæði, samkvæmt uppdr THG dags. 22. júlí 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.