Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. nóvember 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2024 þar sem sótt er um leyfi til að breyta, endurgera og byggja ofaná mhl. 02 og innrétta þar þrjár íbúðir og til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum, mhl. 03 á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 19. ágúst 2024 og 16. desember 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Þingholtsstræti 17, 18, 22, 22A og 23 og Ingólfsstræti 18, 19, 20 og 21.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.