Stekkjarbrekkur - Hallsvegur - Breyting á deiliskipulagi - Lambhagavegur 14
Lambhagaveg 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1001
20. febrúar, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. ágúst 2024 var lögð fram umsókn Halls Kristmundssonar, dags. 16. júlí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkna - Hallsvegar vegna lóðarinnar nr. 14 við Lambhagaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir nýrri endurvinnslustöð Sorpu á lóð, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 18. júní 2024. Einnig er lögð fram tillaga Nordic Office of Architecture, dags. 6. maí 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti  Halls Kristmundssonar, dags. 17. febrúar 2025, þar sem umsókn er dregin til baka.
Umsókn er dregin til baka sbr. tölvupóstur, dags. 17. febrúar 2025.
Svar

Umsókn er dregin til baka sbr. tölvupóstur, dags. 17. febrúar 2025.