Grensásvegur 24
Grensásvegur 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1003
6. mars, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2025 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055716, með síðari breytingu USK23030024 þannig að hús nr. 24, er hækkað um eina hæð og ásamt húsi nr. 26 klætt utan með álklæðningu, gistihús í flokki ll teg b, mhl. 01, á lóð nr. 24 við Grensásveg. Erindi var samþykkt í grenndarkynningu og er nú lagt fram að nýju.
Fallið er frá grenndarkynningu þar sem ekki er þörf á að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Heiðargerði 65 þar sem eigandi Heiðargerðis 65 er eigandi Grensásvegar 24.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Svar