Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 352
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju Aðalskipulagsbreyting v. Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, Stakar húsbyggingar á opnum svæðum (OP15, OP28), Heimildir um endurbyggingu, viðbyggingar og nýbyggingar dags. september 2025. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 3. september 2025. Lögð fram svohljóðandi breytingatillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á tillögu að aðalskipulagsbreytingu vegna stakra húsbygginga á opnum svæðum (OP15 og OP28). Sviðsstjóra er falið að breyta aðalskipulagstillögunni og leggja hana að nýju fyrir ráðið með áorðnum breytingum. 1. Leyfilegt nýtingarhlutfall á lóð vegna bygginga verði 350 fermetrar í stað 180 fermetra. 2. Heimildir til byggingar húsa fyrir ferðaþjónustu og/eða útivist eigi einnig við um svæðið í austanverðum Úlfarsárdal og við Úlfarsfell (OP28) eins og Hólmsheiði (OP15). 3. Heimilt verði að stunda garðyrkju á þeim frístundalóðum, sem skipulagstillagan nær til og reisa gróðurhús og verkfærageymslur í því skyni. 4. Heimilt verði að skipta upp lóðum í smærri einingar með breytingum á deiliskipulagi. 5. Tekin verði af öll tvímæli um að ekki verði lagðar á afturvirkar kvaðir á lóðir varðandi byggingarrétt með fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagsbreytingu. Breytingartillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiðir atkvæði með breytingartillögunni. Upphafleg tillaga er samþykkt, sbr. 1. og 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn deildarstjóra aðalskipulags dags. 3. september 2025, með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá með afgreiðslu málsins.
Svar

Vísað til borgarráðs.