Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Þakkað er fyrir kynningu á stöðu þróunar hringrásargarðs á Álfsnesi, þróunaráætlun svæðisins og þeim sviðsmyndum um framtíðarlandnotkun sem kynntar voru á fundinum. Ljóst er að um er að ræða eitt mikilvægasta þróunarsvæði Reykjavíkur til framtíðar þegar kemur að atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun. Veruleg tækifæri felast í að efla nýsköpun, auðlindanýtingu og fjölbreytta atvinnustarfsemi á svæðinu til hagsbóta fyrir Reykjavík og höfuðborgarsvæðið allt. Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að framtíðarþróun Álfsness og annarrar atvinnustarfsemi í austurhluta borgarinnar er nátengd uppbyggingu öflugra samgönguinnviða. Sundabraut er lykilforsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar í Reykjavík og mun gjörbreyta aðgengi að svæðinu, styrkja tengingar við hafnar- og atvinnusvæði borgarinnar, bæta flutningsleiðir um höfuðborgarsvæðið og opna möguleika á skipulagningu íbúabyggðar á svæðinu. Í ljósi þess er fullt tilefni til að hvetja ríkisvaldið til að halda áfram af fullum þunga við undirbúning og framkvæmd Sundabrautar með hagsmuni Reykvíkinga í huga enda er verkefnið ekki aðeins mikilvægt samgöngumál heldur einnig eitt mikilvægasta atvinnu- og þróunarmál Reykjavíkur til framtíðar.