Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. janúar 2025 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. janúar 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta notkun mhl.02 úr bílskúr í gistirými 02-0101 og 02-102 og breyta notkun íbúða í gistiheimili í flokki ll tegund d, íbúð 0001 í gistiheimili fyrir 6 gesti í þremur herbergjum, íbúð 0101 í gistiheimili fyrir 10 gesti í 5 herbergjum í íbúð 0101 og 02-0101 og íbúð 0201 í gistiheimili fyrir 10 gesti í 6 herbergjum í húsi á lóð nr. 83 við Snorrabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. febrúar 2025.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 13. febrúar 2025.