Ármúli 38
Ármúli 38
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1236
16. desember, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta notkun skrifstofurýma í íbúðir og byggja svalir á austurhlið 2. hæðar í skrifstofu- og verslunarhúsi, mhl. 03, á lóð nr. 38 við Ármúla. Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. í mars 2025, fundargerðir aðalfundar húsfélags dags. 29. október 2024 og 20. mars 2025, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2024 og umsögn HER dags. 3. september 2025. Erindi var grenndarkynnt frá 8. ágúst til 5. september 2025 og fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2025.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing er gerð þar sem verið er að gera breytingar á fjöleignarhúsi.
Eignaskiptayfirlýsandi þarf að senda staðfestingu á að byrjað sé að gera eignaskiptayfirlýsingu á
eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis. Þinglýsa þarf
eignaskipatyfirlýsingu fyrir lokaúttekt.