Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. ágúst 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. ágúst 2024 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi, koma fyrir framleiðslueldhúsi á vinnurými í tengslum við nýja kaffistofu á 1. hæð, og bæta flóttaleiðir með því að koma fyrir flóttastiga frá risi niður á svalir 2. hæðar og flóttastiga þaðan niður á bílastæði við suðurhlið, einnig er gerð ný skábraut meðfram austurgafli skólahúss á lóð nr. 23 við Öldugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.