Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til endurbóta, nýbygginga og niðurrifs í þremur áföngum; Í 1. áfanga eru gerðar
endurbætur, niðurrif á stigahúsi og breytingar á núverandi íbúðarhúsi í samráði við Minjastofnun og
mhl.05 byggður sem er sameiginlegt tæknirými í kjallara, í 2. áfanga eru byggð tvö hús, mhl.02 einnar
hæðar timburbygging og mhl.03 sem einnig er einnar hæðar timburbygging, í 3. áfanga er mhl.04
sem er nýtt tveggja hæða steinsteypt íbúðarhús með kjallara og risi. Alls eru 4 íbúðir og atvinnurými
í kjallara mhl.01, ein íbúð í mhl.02, ein íbúð í mhl.03 og í mhl.04 eru tvær íbúðir og atvinnurými í
kjallara, á lóð nr. 30 við Vesturgötu.
Afgreiðist samhliða erindi USK24060133 þar sem sótt er um niðurrif.
Samskonar erindi BN057209 var samþykkt 10. mars 2020, en er fallið úr gildi og nú sótt um að nýju.
Erindi fylgir hæðablað og hluti af lóðauppdrætti 1.131.2 dags. 24. febrúar 2024 og yfirlit breytinga á
aðaluppdráttum samþykktum 21. júní 2011.
Stærðir eftir breytingu:
Mhl.01: 229,1 ferm., 665,1 rúmm.
Mhl.02: 57,8 ferm., 198,0 rúmm.
Mhl.03: 43,9 ferm., 180,8 rúmm.
Mhl.04: 227,6 ferm., 699,9 rúmm.
Mhl.05: 7,6 ferm., 22,3 rúmm.
Samtals stækkun: 209,6 ferm., 807,5 rúmm.