Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun Hegningarhússins við Skólavörðustíg, mhl.01, og innrétta
verslun, vinnustofur og sýningarsvæði, einnig er sótt um leyfi til þess að byggja einnar hæðar
glerbyggingu á kjallara að hluta, mhl.02, meðfram gamla fangelsismúrnum og innrétta sem
veitingastað í flokki ll teg ? fyrir um alls 80 gesti á lóð nr. 9 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 15. febrúar 2024, greinargerð Örugg ehf um brunavarnir
dags. 6. febrúar 2024 og skýrsla hönnuðar um sögu Hegningarhússins dags. ágúst 2017. Ekki eru
gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Stærð Mhl.01: Óbreytt.
Stærð Mhl.02: 204.5 ferm., 671.1 rúmm.