Lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 16. janúar 2025, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu á vinnslustigi vegna breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 á vinnslustigi vegna rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi. Svæðið afmarkast af strandlínu Kársness til norðurs og vesturs og af núverandi íbúðarbyggð við Þinghólsbraut, Kársnesbraut og Huldubraut austurs og suðurs. Alls er skipulagssvæðið um 57,2 ha. Svæðið er skilgreint sem samgöngumiðað þróunarsvæði í gildandi aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir þéttri og blandaðri byggð við Borgarlínu. Viðfangsefni tillögunnar snýr einkum að áframhaldandi þróun svæðisins með sérstakri áherslu á gæði byggðar, góðar samgöngutengingar m.a. fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og almenningsrými. Sett er fram heildarsýn fyrir framtíðarþróun svæðisins, sem verður útfærð nánar í deiliskipulagsáætlunum fyrir tiltekna reiti á svæðinu. Vísað til meðferðar verkefnastjóra.