Grettisgata 20A
Grettisgata 20A
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1181
29. október, 2024
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi að fjölga eignum, bæta við tveimur nýjum íbúðum, einni í kjallara og annarri á rishæð mhl.01, dýpka kjallara, rífa núverandi stigahús og byggja viðbyggingu á tveimur hæðum auk kjallara, og svala til suðurs auk þess að byggja nýbyggingu mhl.02, með tveimur íbúðum, á tveimur hæðum auk kjallara á suðurhluta lóðar nr. 20A við Grettisgötu. Afgreiðist samhlíða erindi USK25060130, sem fjallar um samskonar framkvæmir fyrir aðliggjandi hús á lóð nr. 20B við Grettisgötu. Stækkun Mhl.01: 144.9 ferm., 489.4 rúmm. Stærð Mhl.02: 159.4 ferm., 514.8 rúmm. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar um frávik frá algildri hönnun varðandi íbúð 0001 dags. 23. október 2024, greinargerð frá hönnuði dags. 21. ágúst 2024, ódagsett greinargerð Tensio verkfræðistofu um burðarþolshönnun, umsagnir Minjastofnunar varðandi mhl.01 dags. 8. febrúar 2023 og mhl.02 dags. 15. júní 2023 og 22. október 2023, afrit af tillögu að deiliskipulagsbreytingu á teikningu 1125-00-01a dags. 16. febrúar 2024, hæðablað dags. september 2014 yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 13. maí 1976, og yfirlit breytinga á aðaluppdrætti, sem fallin er úr gildi, samþykktum 24. janúar 2017.
Svar

Frestað. Vísað til athugasemda.