Bryggjuhverfi, svæði 4 - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Gjúkabryggja 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 973
11. júlí, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. maí 2024 var lögð fram fyrirspurn M11 arkitekta ehf., dags. 20. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis, svæði 4, vegna lóðarinnar nr. 8 við Gjúkabryggju, sem felst í að minnka byggingarmagn, lækka hæðarkóra í tveimur byggingum innan lóðar og fækka bílastæðum, samkvæmt uppdr. M11 arkitekta, dags. 20. maí 2024. Einnig er lögð fram viljayfirlýsing Hopp Reykjavík ehf. og FA 40 ehf., dags.6. maí 2024, um samvinnu að aðgengi að deilibílum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. júlí 2024, samþykkt.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. júlí 2024, samþykkt.