Elliðaárdalur - Breyting á deiliskipulagi - Skipulagslýsing
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 974
25. júlí, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2024, vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi sem nær yfir afmarkað svæði í Elliðaárdal. Deiliskipulagstillagan nær yfir svæði frá Árbæjarstíflu upp fyrir Blásteinshólma og neðan frá stíflunni meðfram Rafstöðvarvegi að Elliðaárvirkjun. Markmið með deiliskipulagsbreytingunni er að uppfæra deiliskipulag fyrir Elliðaárdalinn þar sem árbæjarlónið verður ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir eru endurheimtir. Fjallað verður um nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg tenging yfir dalinn ásamt mögulegum dvalar og áningastöðum. Í deiliskipulagsvinnunni verður lögð áhersla á lífríkið á svæðinu og hugsanlegar mótvægisaðgerðir vegna frárennslis frá byggð í Elliðaárnar. Neðan stíflunnar er markmið breytts skipulags að auka umferðaröryggi um Rafstöðvarveg meðan staðinn er vörður um sjónræn tengsl Árbæjarstíflu og Elliðaárvirkjunar. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla. Lýsingin var í kynningu frá 30. maí til og með 12. júlí 2024 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Umhverfisstofnun, dags. 10. júní 2024, Íbúaráð Breiðholts, dags. 13. júní 2024, Íþróttafélagið Fylkir, dags. 27. júní 2024, Náttúrufræðistofnun Íslands, dags. 27. júní 2024, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 28. júní 2024, Stangveiðifélag Reykjavíkur, dags. 28. júní 2024, búaráð Árbæjar og Norðlingaholts, dags. 28. júní 2024, Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, íbúasamtaka, foreldrafélaga, og fulltrúa Íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts, dags. 3. júlí 2024, Hafrannsóknastofnun, dags. 8. júlí 2024 og Minjastofnun Íslands, dags. 11. júlí 2024. Skipulagsstofnun sendi ekki athugasemd en er tilbúin til að  leiðbeina um tiltekin atriði sé þess óskað.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnastjóra.