Eyjarslóð 1
Eyjarslóð 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1178
8. október, 2024
Vísað til skipulagsfulltrúa
‹ 8
9
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi 2. hæðar, rými 0201, koma fyrir tvennum svölum á suðurhlið, breyta gluggasetningu, endurnýja þak og klæða að utan með dökkri álklæðingu suðurhluta vörugeymslu við Hólmaslóð 2A, mhl. 01, á lóð nr. 1 við Eyjaslóð. Erindi fylgir samþykki meðeiganda á skönnuðu afriti skjals + Arkitekta nr. S1, dags. 8. september 2024 og afrit af aðaluppdráttum samþykktum 16. maí 2006.
Svar

Vísað til athugasemda.
10.Ferjuvogur 2 - USK24090193
Sótt er um leyfi til að gera nýja milliveggi í tveimur skólastofum á 1. hæð í suðausturhorni
Vogaskóla á lóð nr. 2 við Ferjuvog.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, bréf umsækjanda og yfirlýsing hönnunarstjóra dags. 16.
september 2024.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
11.Fossháls 13-15 - USK24090346
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24070124 sem snýr að því að færa steyptan vegg
út að lóðarmörkum á lóð nr. 13-15 við Fossháls.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
12.Freyjugata 16 - USK24090192
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061489 vegna lokaúttektar í húsi á lóð nr. 16 við
Freyjugötu.
13.Gerðarbrunnur 9 - USK24090091
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi USK22122925 með síðari breytingu
USK23100169 þannig að innra skipulagi er breytt, staðsetningu eldhúss og stofu er víxlað,
gluggum breytt og þakkantur lengdur um 0.5m meðfram framhlið einbýlishúss á lóð nr. 9
við Gerðarbrunn.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Gerðarbrunns 11 vegna frágangs á lóðarmörkum áritað á
teikningu A001-AA dags. 5. september 2024 og yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta
samþykktum 28. nóvember 2023.
14.Gufunesbryggja - Landfylling - Gámatjald/Gufunesbr. - USK24090080
Sótt er um stöðuleyfi fyrir gámatjöldum við Gufunesbryggju.
15.Gylfaflöt 10 - USK24050393
Sótt er um leyfi til þess að fækka eignum með því að sameina rými 0101 og 0102 og
innrétta sem líkamsræktarstöð með um 4-5 starfsmenn og rými fyrir um 30 gesti í
iðnaðarhúsi á lóð nr. 10 við Gylfaflöt.
Erindi fylgir ódagsett samþykki meðlóðarhafa, og yfirlit breytinga byggð á skjáskotum af
aðaluppdráttum.
16.Hallgerðargata 13 - USK23090125
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055918 þannig að stigleiðsla á 6. hæð er færð í húsi
á lóð nr. 13 við Hallgerðargötu.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
17.Haukahlíð 2 - USK24100016
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061145 þannig að hljóðkröfum er breytt í fjölbýlishúsi
á lóð nr. 2 við Haukahlíð.
Erindi fylgir uppfærð greinargerð um hljóðvist frá Eflu dags. 1. október 2024.
18.Heiðargerði 24 - USK24090335
Sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja kvisti, bæta við glugga á gafli og breyta innra
skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 24 við Heiðargerði.
Stærð: 54,7 ferm., 162,3 rúmm.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
19.Helluland 1 - USK24090377
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059290, innra skipulag er breytt sem og klæðning og
þakgluggar viðbyggingar á raðhúsi á lóð nr. 1 við Helluland.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og stöðuúttekt dags. 24.september 2024.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
20.Hjarðarhagi 13 - USK24060183
Sótt er um heimild til þess að breyta notkun bílskúrs í vinnustofu, fjarlægja bílskúrshurð og
koma fyrir léttum vegg með glugga og hurð, koma fyrir vaski og útbúa snyrtingu í hluta
bílskúrs, mhl. 71, á lóð fjölbýlishúss nr. 13 við Hjarðarhaga.
Erindi fylgir samþykki tveggja meðlóðarhafa dags. 10. júní 2024 og yfirlit breytinga
dags.16. janúar 1958.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu þar sem um er að ræða breytta skráningu á
fjöleignarhúsi.
Fyrir útgáfu byggingarleyfis þarf að berast staðfesting frá eignaskiptayfirlýsanda, á
tölvupóstfang eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is, um að vinna á nýrri eignaskiptayfirlýsingu
er hafin. Eignaskiptayfirlýsingu þarf að þinglýsa fyrir lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
21.Hringbraut 121 - USK24090123
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24040341 þannig að sótt er um leyfi til að breyta
innra skipulagi á 1. hæð í húsi á lóð nr.121 við Hringbraut.
Erindi fylgir Hljóðvistargreinagerð dags.17. september 2024, brunvarnarskýrsla dags.10.
september 2024 og yfirlit breytinga dags. 12. janúar 2021.
22.Hverfisgata 96 - USK23040208
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059394 þannig að opnun hurða á salernum er breytt,
ofni fyrir bakvinnslu, háf fyrir ofan ofn, viðvörunarstöð, fatahengi, ræstirými og gufuháf
bætt við á veitingastað á lóð nr. 96 við Hverfisgötu.
23.Háaleitisbraut 103 - USK24090175
Sótt er um stöðuleyfi fyrir gámi til að geyma búslóð meðan á endurnýjun stendur á lóð nr.
103 við Háaleitisbraut.
Erindi fylgir samþykki húsfélaga Háaleitisbrautar 101 og 103 dags. 29. september 2024.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
24.Hálsasel 27 - USK24100012
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23070222 þannig að sótt er um leyfi til að hækka
þakmæni á skólahúsnæði á lóð nr. 27 við Hálsasel.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Stækkun:
25.Hólmaslóð olíustöð 1A - USK24090334
Sótt er um leyfi til að breyta bensínþró í tvær aðskilda þrær á lóð nr. 1A við Hólmaslóð.
Ófullnægjandi gögn.
26.Jöfursbás 5, mhl. 01 - USK24050383
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060091 vegna lokaúttektar þannig að svalahandrið
verða úr gleri, staðsetningu reyklúgu úr bílakjallara, hurðaopnunum og eldhúsum er breytt
í fjölbýlishúsi nr. 5D, mhl. 01 á lóð nr. 5 við Jöfursbás.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
27.Jöfursbás 5, mhl. 04 - USK24090216
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059926 með því að skilja djúpgáma frá kjallaranum
og gera að sér matshluta og breyta reyklosun úr bílakjallara, mhl. 04 á lóð nr. 5 við
Jöfursbás.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
28.Jöfursbás 5B, mhl. 02 - USK24090214
Sótt e rum leyfi til að breyta erindi breyta BN060023 vegna lokaúttektar með því að breyta
skipulagi eldhúsa, koma fyrir nýjum lagnastokkum og breyta öllum handriðum í glerhandrið
í fjölbýlishúsi nr. 5B, mhl. 02 á lóð nr. 5 við Jöfursbás.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
29.Jöfursbás 5C, mhl. 03 - USK24090215
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059868 vegna lokaúttektar með því að breyta
skipulagi eldhúsa á efstu hæð og breyta svalahandriðum í glerhandrið á fjölbýlishúsi nr.
5C, mhl. 03 á lóð nr. 5 við Jöfursbás.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
30.Klettagarðar 12 - USK24090354
Sótt er um leyfi til að byggja milliloft í atvinnuhúsi á lóð nr. 12 við Klettagarða.
Erindi fylgir bréf frá skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2024.
Stækkun: 498,6 ferm.
31.Klettháls 13 - USK24090060
Sótt er um stöðuleyfi fyrir geymslutjaldi á lóð nr. 13 við Klettháls.
Stærð: 195,2 ferm., 878,8 rúmm.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags 26. september 2024 fylgir erindi.
32.Koparslétta 20 - USK24090116
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN036191 vegna lokaúttektar þannig að innra
skipulagi er breytt, svölum komið fyrir á austurhlið og innkeyrsluhurð á suðurhlið einnig
hefur verið hætt er við byggingu spennustöðvar í norðurenda iðnaðarhúss á lóð nr. 20 við
Koparsléttu.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar vegna hönnuðaskipta dags. 2. október 2024 og yfirlit
breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 30. október 2007.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
33.Kuggavogur 26 - USK24090355
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057990 þannig að sótt er um heimild fyrir svalalokun
í íbúð 0501 á lóð nr. 26 við Kuggavog.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 2. maí 2023 og samþykki eiganda dags. 2. júní 2024.
34.Köllunarklettsvegur 1 - USK24090344
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í Norðurenda 3. og 4. hæðar í mhl. 01 á
lóð nr. 1 við Köllunarklettsveg.
35.Lambhagavegur 12 - Breyttar eldvarnarmerkingar innanhúss. - USK24090062
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23110263. sem snýr að því að eldvarnarhurð milli
kaffistofu og þvottarýmis er fjarlægð í húsi á lóð nr. 12 við Lambhagaveg.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
36.Lambhagavegur 23 - USK24050294
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á lóð nr. 23 við Lambhagaveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 12. ágúst 2014.
37.Laufásvegur 41 - USK24100031
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN061726 vegna lokaúttektar þannig að
hurðaopum er breytt í rými 0101 á gististað í flokki ll tegund B í húsi á lóð nr. 41 við
Laufásveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 13. desember 2022.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
38.Laugarásvegur 63 - USK24090041
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum stoðvegg á lóðarmörkum að lóð nr. 59, pergólu og
steyptum heitum potti á steyptri verönd við einbýlishús á lóð nr. 63 við Laugarásveg. Erindi
fylgir samþykki Eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar fyrir hönd lóðar nr. 59 dags. 27. febrúar
2024.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa , dags 26. september 2024.
39.Lindargata 2 - USK24090332
Sótt er um leyfi til að endurnýja hurð með því að hafa aðgangsstýrða öryggishurð
dómhúss hæstaréttar á lóð nr. 2 við Lindargötu.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
40.Lofnarbrunnur 30 - USK24070125
Sótt er um heimild til að byggja veggi úr steypu og timbri meðfram lóðarmörkum á lóð nr.
30 við Lofnarbrunn.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
41.Lofnarbrunnur 46 - USK24090307
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt tvíbýlishús á lóð nr. 46 við Lofnarbrunn.
Erindi fylgir hæðarblað 5.055.6 dags. febrúar 2011 mæliblað 5.055.6 dags. 10. júlí 2007,
greinagerð hönnuðar dags. 20. september 2024, gátlisti og innra eftirlit hönnuðar dags.
20. september 2024.
Stærð: 505,8 ferm., 1.632,3 rúmm.
42.Miklabraut 100 - USK24090219
Sótt er um leyfi til að byggja hleðslustöðvar og spennustöðvar á mhl. 02 og 03 á lóð nr.
100 við Miklubraut.
Erindi fylgir mæliblað 1.720.2 dags. 3. febrúar 2010.
Stærð, mhl 02: 7,5 ferm., 21,4 rúmm.
Mhl. 03: 7,8 ferm., 22,4 rúmm.
Samtals: 15,3 ferm., 43,8 rúmm.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
43.Móvað 35 - USK24090191
Sótt er um leyfi til þess breyta tilhögun á lóð, koma upp heitum potti og útisturtu og
skjólveggjum, stækka og breyta lögun skyggna yfir bílskúr og inngangi, gera opið skýli
framan við anddyrið og hjólaskýli við norðaustur hlið, og klæða að utan með
málmklæðningu einbýlishús á lóð nr. 35 við Móvað.
Erindi fylgja óstimplaðir aðaluppdrættir dags. 20. júlí 2007 og þrívíddarmyndir frá hönnuði
til skýringa á breytingum.
44.Réttarholtsvegur 21-2 - USK24080310
Sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta innra skipulagi í B-álmu Réttarholtsskóla á lóð
nr. 21-23 við Réttarholtsveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
45.Réttarháls 2 - USK24070153
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2. hæð í rýmum 0201 og 0204, opna milli
rýma í austurhluta hússins og breyta notkun úr hárgreiðslustofu yfir í funda- og
kennslurými, auk þess sem vöruhurðum verður lokað og byggður veggur með einangrun
og álklæðningu í húsi á lóð nr. 2 við Réttarháls.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
46.Samtún 16 - USK24070039
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi, op í vegg og breyting á
stiga í húsi á lóð nr. 16 við Samtún.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar.
Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.
Þar sem þinglýst eignaskiptayfirlýsing er fyrir á lóð þá öðlast samþykktin ekki gildi fyrr en
ný eignaskiptayfirlýsing er þinglýst.
47.Sigtún 28 - USK24070115
Sótt er um leyfi til að byggja níu hæða viðbyggingu með 140 herbergjum og breyta innra
skipulagi fundarsala og þjónusturýmum og verða þannig 451 gistirými í Grand Hotel á lóð
nr. 28 við Sigtún.
Erindi fylgir greinargerð hönnunarstjóra dags. 5. júlí 2024, greinargerð um brunavarnir frá
Örugg dags. 7. júlí 2024 og útreikningur á varmatapi ódagsett.
Stækkun: 12.136 ferm., 53.152,7 rúmm.
Eftir stækkun: 31.608,3 ferm., 73.681,1 rúmm.
48.Silfurslétta 2 - USK24090142
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN060165 þannig að skráning er uppfærð,
rýmisnúmerum er fækkað, innra skipulagi breytt sem og útiliti geymslu- og skrifstofuhúss,
einnig er hætt við steypta stoðveggi á lóð nr. 2 við Silfursléttu.
Minnkun: 0.8 ferm, 0.6 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 26. apríl 2022.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
49.Skólavörðustígur 37 - USK24090124
Sótt er um leyfi til þess að breyta fjölga eignum og breyta notkun, síkka kjallara, innrétta
veitingastað í flokki 2 tegund a fyrir 70 gest, þar af 52 í rými 0101 og 18 í rými 0203,
innrétta 6 íbúðir, koma fyrir lyftu, síkka og breyta gluggum gera nýjar þakvalir og breyta
þaki húss Hvítabandsins á lóð nr. 37 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir minnisblað Lotu um íbúðir án svala dags. 27. september 2024, greinargerð
VSÓ ráðgjafar um burðarvirki dags. 26. september 2024, greinargerð Myrru hljóðstofu um
hljóðvist dags. 4. september 2024 og yfirlit yfir útlitsbreytingar á götuhliðum húss á afrita
aðaluppdráttar samþykktum 2. febrúar 1933 og 13. október 1977.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
50.Stefnisvogur 1 - USK24070158
Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með 60 íbúðum, og bílageymslu
fyrir 60 bíla í mhl. 01, 02, 03 og 04 á lóð nr. 1 við Stefnisvog.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Stærð: 10.832,5 ferm., 26.113,6 rúmm.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
51.Sæmundargata 2 - USK24100015
Sótt er um leyfi til að gera nýja skábraut við aðalinngang aðalbyggingar HÍ á lóð nr. 2 við
Sæmundargötu.
52.Síðumúli 15 - USK24080193
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi skrifstofurýma á 3. hæð í norðurenda húss á
lóð nr. 15 við Síðumúla.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
53.Sólvallagata 68 - USK24090308
Sótt er um leyfi til að byggja sólskála, mhl. 04 á lóð nr. 68 við Sólvallagötu.
Jafnframt er erindi BN060868 dregið til baka.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. 28. mars 2022.
Stærð 40 ferm. og 114,8 rúmm.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu þar sem um er að ræða breytta skráningu á
fjöleignarhúsi.
Fyrir útgáfu byggingarleyfis þarf að berast staðfesting frá eignaskiptayfirlýsanda, á
tölvupóstfang eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is, um að vinna á nýrri eignaskiptayfirlýsingu
er hafin. Eignaskiptayfirlýsingu þarf að þinglýsa fyrir lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
54.Urðarbrunnur 30 - USK24070074
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055356 vegna lokaúttektar á húsi á lóð nr. 30 við
Urðarbrunn.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
55.Vatnsvv. Heimahvammur - Niðurrif - USK24090241
Sótt er um leyfi til að rífa mhl. 01, 02 og 70 á lóðinni Heimahvammur við Vatnsveituveg
Niðurrif fasteignanúmer F2044140:
010101, einbýli: 78 ferm.,
020101 bílskúr: 35,3 ferm.,
700101 bílskúr: 34,8 ferm.
Samtals niðurrif: 148,1 ferm.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
56.Vesturgata 37 - USK24080136
Sótt er um leyfi til að breyta notkun úr bílageymslu í geymslu og áður gerðum innanhúss
breytingum í húsi nr. 37 við Vesturgötu.
57.Vorsabær 2 - USK24050088
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við hús á lóð nr. 2 við Vorsabæ.
Stækkun 26 ferm. og 70 rúmm.
Erindinu fylgir svar við fyrirspurn til skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2023.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
58.Þönglabakki 6 - USK24090267
Sótt er um leyfi til þess að fækka eignum með því að sameina rými 0106, 0107 og 0108
og breyta innra skipulagi, og innrétta söluturn veitingastað í flokki 1 teg C, og spilasal í
verslunar- og skrifstofuhúsi við Þönglabakka 6, mhl.07, á lóðinni Álfabakki12-16/Þönglab.
Jafnframt er erindi USK23110229 dregið til baka.
59.Öldugata 23 - USK24060207
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi, koma fyrir framleiðslueldhúsi og
vinnurými í tengslum við nýja kaffistofu á 1. hæð, og bæta flóttaleiðir með því að koma
fyrir flóttastiga frá risi niður á svalir 2. hæðar og flóttastiga þaðan niður á bílastæði við
suðurhlið, einnig er gerð ný skábraut meðfram austurgafli skólahúss á lóð nr. 23 við
Öldugötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 12. júní 2024 og yfirlit breytinga á afriti
aðaluppdrátta samþykktum 28. júlí 1994.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
60.Leifsgata 24 - USK24020266
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi fjölbýlishúss á lóð nr. 24 við Leifsgötu.
Erindi fylgir íbúðarskoðun byggingafulltrúa dags. 26. janúar 2007, samþykki meðlóðarhafa
dags. 1. apríl 2007 og umboð eiganda einnig dags. 1. apríl 2007.
Fundi slitið kl. 12:00
Brynjar Þór Jónasson
Sigrún Reynisdóttir
Margrét Pálína Cassaro
Sigurður Stefán Karlsson
Kristín Björg I Sverrisdóttir