Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. maí 2024 var lögð fram umsókn A arkitekta ehf., dags. 14. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Starhaga-Þormóðsstaðavegar vegna lóðar nr. 11 við Starhaga. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er rýmkaður og stækkaður, en gert er ráð fyrir að byggingar rúmi átta deilda leikskóla, lágmarksbyggingarmagn er hækkað, lóð er stækkuð til suðausturs til að auka við útileiksvæði og lóðamörk eru dregin til baka frá hjólastíg um 1 m, samkvæmt uppdr. A arkitekta, dags. 12. apríl 2024. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Starhaga 1, 3, 5 7 og 9.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7. 6. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.