Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 363
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Halldóru Kristínar Bragadóttur, dags. 14. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi fyrir Skeifuna-Fenin vegna lóðanna nr. 7 og 9 við Skeifuna. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. að sameina lóðirnar og afmarka þær í eina nýja lóð að viðbættu borgarlandi að Suðurlandsbraut, rífa niður þær byggingar sem fyrir eru á lóðunum og reisa nýja byggingu með íbúðum og atvinnuhúsnæði á nýrri sameinaðri lóð. Byggingin verður að mestu leyti 4 til 6 hæða með randbyggð umhverfis upplyftan garð, en þó 8 hæðir á norðvesturhorni, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Kanon arkitekta, dags. 13. maí 2024, síðast br. 2. október 2024. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar Kanon arkitekta, dags. 13. maí 2024, síðast br. 2. október 2024, og skuggavarpsuppdrættir Kanon arkitekta, dags. 2. október 2024. Jafnframt er lögð fram tæknileg áreiðanleikakönnun VSÓ ráðgjafar dags. í júní 2020, minnisblað Mannvits, dags. 7. mars 2023, um sig á gólfplötum 2. og 3. hæðar Skeifunnar 7, minnisblað Hnit verkfræðistofu, dags. 19. apríl 2024, um grundun væntra nýbygginga að Skeifunni 7 og 9, hljóðvistarskýrsla Arnheiðar Bjarnadóttir hjá Hljóðvist Ráðgjöf og Hönnun, dags. 6. maí 2024, minnisblað Mannvits, dags. 14. maí 2024, vegna skoðunar og sýnatöku að Skeifunni 7, greinargerð Hnits verkfræðistofu, dags. í maí 2024, um endurnotkunaráætlun og koldíoxíðspor og samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. í maí 2024. Tillagan var auglýst frá 9. janúar 2025 til og með 20. febrúar 2025. Athugasemdir og umsögn bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. júlí 2025.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Fulltrúar samstarfsflokkanna fagna fyrirhugaðri íbúðaruppbyggingu við Skeifuna 7 og 9. Hún byggir á rammaskipulagi Skeifunnar frá 2016 sem gerir ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis. Einnig hefur lengi verið ljóst að Borgarlínan keyrir um Suðurlandsbraut og á þessum stað verður stór biðstöð. Fyrirhugað torg við suðvesturhluta byggðarinnar lofar góðu. Mikilvægt er að við útfærslu bygginganna verði borgarhönnunarstefnan höfð að leiðarljósi. Mikilvægt er að vanda fyrirkomulag gróðurs á svæðinu til að skapa mannvænt umhverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks styðja fyrirliggjandi uppbyggingu en leggja áherslu á að skuggavarp hafi ekki neikvæð áhrif á nærliggjandi byggð. Fulltrúarnir fagna því að bílastæðafjöldi samræmist fjölda íbúða en lýsa þó yfir áhyggjum af samgönguskipulagi borgarinnar fyrir svæðið og sitja hjá af þeim sökum. Af gögnum virðist borgin áforma takmarkað aðgengi fyrir akandi að verslun og þjónustu á svæðinu. Telja fulltrúarnir mikilvægt að samgönguskipulagi verði breytt með þeim hætti að aðgengi að íbúðum, verslun og þjónustu verði gott, óháð þeim fararmáta sem fólk kann að velja sér.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fyrirhuguð uppbygging á lóðum 7 og 9 í Skeifunni er að mörgu leyti ágæt. Fulltrúi Framsóknar fagnar að skipulag á reitunum gerir ráð fyrir einu bílastæði per íbúð, þó má benda á nauðsyn þess að verslunar- og þjónusturými sem fyrirhuguð er á jarðhæð sé með þeim hætti að hún verði ekki of einsleit. Mikilvægt er að þessi rými bjóði upp á fjölbreytileika í stærð sem gefi stærri rekstraraðilum tækifæri til að reka þar ýmsa þjónustu t.d, stærri matvöruverslanir. Ef ekki er hugað að þessu er hætta á að sama ástand skapist eins og við Snorrabraut og í Hlíðarendahverfi, þar sem mörg þjónusturými standa tóm.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Viðreisn gleðst yfir uppbyggingunni á Skeifureitnum, uppbyggingin á lóðum 7 og 9 í Skeifunni er gott framlag til fegrunar svæðisins, en það hefur þurft mikið á upplyftingu að halda í alltof langan tíma.