Nauthólsvík - breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 975
8. ágúst, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Nauthólsvíkur vegna breytingar á legu Borgarlínu og stoppistöðvar hennar sem færist út af deiliskipulagssvæðinu. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á legu Borgarlínu og stoppistöðvar hennar sem færist út af deiliskipulagssvæðinu. Borgarlína mun þvera Nauthólsveg og fara að stoppistöð við Háskólann í Reykjavík sem mun þjóna háskólasvæðinu og Nauthólsvík, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 21. maí 2024. Tillagan var auglýst frá 13. júní 2024 til  og með 26 júlí 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Landhelgisgæsla Íslands, dags. 26. júní 2024 og Isavia Innanlandsflugvellir, dags. 19. júlí 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.