Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að innra skipulagi 2. hæðar hefur verið
breytt, skipt í þrjár leigueiningar auk þess sem komið hefur verið fyrir nýjum svölum, á
austanverðri suðurhlið hússins á lóð nr. 24 við Suðurlandsbraut.
Samskonar erindi BN0591647 var samþykkt 4. maí 2021 og framkvæmt án byggingarleyfis.
Erindi fylgir skýrsla um húsaskoðun dags. 17. desember 2025, bréf frá hönnuði dags. 7. maí 2024
og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 30. október 2018.