Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. maí 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. maí 2024 þar sem sótt er um leyfi að byggja kvist, hækka þak og setja svalir á fjölbýlishús á lóð nr. 14 við Lindargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.