Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 967
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn A2F arkitekta ehf. , dags. 6. maí 2024, ásamt greinargerð, dags. 6. maí 2024, um að fjölga íbúðum í húsunum á lóðum nr. 14A og 14B við Óðinsgötu og hækka nýtingarhlutfall á lóðunum. Að Óðinsgötu 14A er jafnframt óskað eftir heimild til að stækka jarðhæð hússins til norðvesturs, bæta við tvíhallandi kvisti götumegin og fjarlægja núverandi kvisti til norðvesturs og gera þess í stað einhallandi inndregin kvist, fjarlægja svalir á norðvesturhlið húss og gera fjórar litlar svalir á 2. hæð og rishæð. Að Óðinsgötu 14B er jafnframt óskað eftir heimild til að grafa frá húsinu suðaustanmegin til að auka loft- og dagsbirtugæði inn í byggingu, setja útitröppu til suðausturs til að tengja íbúðir á jarðhæð, en íbúðir á jarðhæð eru með sér inngang, og gera tvær nýjar litlar svalir á 2. hæð, samkvæmt uppdr. A2F arkitekta, dags. 18. mars 2024. Einnig er lagt fram álit Minjastofnunar Íslands, ódags., og kynning á öríbúðum fyrir mínímalískann lífstíl.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Síðasta markaðsverð
170.000.000 kr.
Fjölbýli · 406 m² · 13.01.2017
Kaupskrá 1 eign
170.000.000 kr. 13.01.2017
Fjölbýli · 406 m² · 5 herb. · bygg. 1923 · HMS