Borgartúnsreitur vestur - breyting á deiliskipulagi - Borgartún 5 og 7  og Guðrúnartún 6 - skipulagslýsing
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 972
4. júlí, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. maí 2024 vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi fyrir Borgartúnsreit vestur. Tilgangur deiliskipulagsbreytingarinnar er að skýra og móta byggingarheimildir á lóðunum Borgartúni 5 og 7 ásamt Guðrúnartúni 6 fyrir blandaða byggð íbúða, þjónustu og atvinnu. Lýsingin var í kynningu frá 30. maí til og með 28. júní 2024. Eftirtaldir sendu umsögn: Skipulagsstofnun, dags. 25. júní 2024, Minjastofnun íslands, dags. 26. júní 2024 og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 28. júní 2024.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnastjóra.