Jöfursbás 1
Jöfursbás 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1172
27. ágúst, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja fjögur 4-6 hæða fjölbýlishús, með 83 íbúðum, atvinnurýmum á tveimur hæðum í vesturenda, á bilakjallara með 35 stæðum sem tengist aðliggjandi bílakjallara (Jöfursbás 3) og verða innkeyrsla og flóttaleiðir samnýttar á lóð nr. 1 við Jöfursbás. Erindi fylgir greinargerð um brunahönnun frá Örugg dags. 29. apríl 2024, greinargerð um algilda hönnun og greinargerð um hljóðvist frá COWI dags. 24. apríl 2024. Einnig fylgir tillaga að kvöð um samnýtingu á bílgeymslu og djúpgámum dags. 26. júní 2024. Stærð: 9.235,4 ferm., 29.857,4 rúmm.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði
þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228382 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131049