Háaleitisbraut 1
Háaleitisbraut 1
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1201
14. mars, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja 6- hæða fjölbýlishús með 27 íbúðum auk kjallara og bílageymslu, mhl.03, á lóð nr. 1 við Háaleitisbraut. Stærð Mhl.03: 3.919.7 ferm., 12.021.5 rúmm. Erindi fylgir auk teikningaskrár, deiliteikning v. lausnar á hæðarmun við svalir, teikn. nr. 31-13 dags. 28. apríl 2024, mæliblað dags 12. mars 2025, lóðauppdráttur dags. 29, júlí 2021 og hæðablað dags. 1. mars 2022.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði
þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.