Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á tveim hæðum úr steinsteypu og bárujárnsklæddri
timburgrind með timburþaki við hús á lóð nr. 4 við Vesturvallagötu. Stærð, fyrir stækkun: 53,7 ferm.,
108,8 rúmm.
Eftir stækkun: 176,4 ferm., 504,1 rúmm.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 20. júní 2024.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.