Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. maí 2024 var lögð fram fyrirspurn Baldurs Ólafs Svavarssonar hjá Úti og inni arkitektum, dags. 17. apríl 2024, ásamt bréfi, dags. 5. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Egilsborgarreits vegna lóðarinnar nr. 1 við Háteigsveg sem felst í stækkun á byggingarreit lóðarinnar fyrir viðbyggingu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. maí 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. maí 2024, samþykkt.