Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2024 var lögð fram umsókn Steinþórs Kára Kárasonar, dags. 10. apríl 2024, ásamt minnisblaði
Kurt og Pí ehf.
, dags. 9. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.161, Kirkjugarðsstígur, Garðastræti, Túngata og Suðurgata, vegna lóðarinnar nr. 37 við Garðastræti. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á byggingarreitum og útfærslu stækkunar á þakhæð auk hækkunar á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr.
Kurt og Pí ehf.
, dags. 2. maí 2024. Einnig er lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 2. apríl 2024. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Garðastræti 35, 38 og 39 og Suðurgötu 8A, 10 og 12.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. gr. 7.6. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.