Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. apríl 2024 var lögð fram fyrirspurn
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 2. apríl 2024, ásamt bréfi, dags. 4. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 4 við Skúlagötu, sem felst í að koma fyrir nýrri aðkomu að húsinu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, sem gerir ráð fyrir umræddri (breyttri) aðkomu og niðurrifi skemmu.