Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Samþykkt
Fyrirspurn
Aflétt úr trúnaðarbók umhverfis- og skipulagsráðs, styrkir úr loftlagssjóði ungs fólks Bloomber Philanthropies Youth Climate Action Fund, sbr. fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs, 2. liður, dags. 21. ágúst 2024 og 3. liður, dags. 25. september 2024; Frá fundi 21. ágúst 2024: Tillaga um úthlutun styrkja frá loftslagssjóði ungs fólks.
Svar

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessum umsóknum sem er merki um áhuga ungs fólks á loftslagsmálum. Styrkumsóknir eru mismunandi eins og gengur. Votlendi er ein stærsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Vandasamt er að endurheimta votlendið og eru því allar hugmyndir vel þegnar. Endurheimt votlendi skiptir miklu máli en Reykjavík er ekki á votlendissvæði, ekki síst því að mýrar sem voru í Reykjavík hafa að mestu verið þurrkaðar upp og vandasamt er að endurheimta þær, svo sem Kringlumýri og Laugarmýri. Þá hefur meirihlutinn hafnað því að auka skógrækt með kolefnisbindingu í huga.
Frá fundi 25. september 2024:
Tillaga um síðari úthlutun styrkja frá loftslagssjóði ungs fólks.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það var von fulltrúa Flokks fólksins að út úr þessum verkefnum sem fá styrki verði eitthvað áþreifanlegt, eitthvað sem skilur eftir sig og aðrir geta notið góðs af. Sem dæmi um slík verkefni eru td. gróðursetningar og loftlagstengdar rannsóknir. Leitt yrði ef svona styrkjum verði sóað í einhvað sem lifir aðeins einu sinni. Engum blöðum er um það að fletta að þátttaka ungs fólks skiptir máli. Kannanir sýna að um 84% ungmenna eru áhyggjufull yfir loftslagsvánni.