Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að sameina íbúð 0001 og 0101 og breyta innra fyrirkomulagi auk þessa að gera
nýtt og stærra stigahús í stað þess eldra, fjarlægja núverandi útitröppur/geymslu og baðherbergi í
kjallara og byggja það upp að nýju með öðrum hætti, lyfta þakhluta garðmegin og setja svalir bakatil
á húsið nr. 22 við Bræðraborgarstíg. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 13. mars 2024.
Umsögn var gerð vegna fyrirspurnar dags. 28. september 2023. Erindi afgreitt á afgreiðslufundi
skipulagsfulltrúa 4. júlí sl. Erindið var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bræðraborgarstíg 20,
24 og 24A og Brekkustíg 15, 15B og 17, frá 30. maí 2024 til og með 28. júní 2024. Engar
athugasemdir bárust.