Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Falk Kruger, dags. 4. mars 2024, um breytingu á deiliskipulagi Grafarholts svæðis 1 vegna lóðarinnar nr. 2-6 við Kirkjustétt. Í breytingunni sem lögð er til felst að svalir megi skaga 1,65 m út fyrir byggingarreit í stað 1,0 m, heimilt verði að fjölga íbúðum um eina, úr 17 íbúðum í 18 íbúðir, stækka byggingarreit fyrir mhl 1 til vesturs til að koma fyrir aukastigahúsi og nýta jarðhæð að hluta til undir tæknirými, sérgeymslur og sameiginlegar geymslur fyrir íbúa á 2. hæð og 3. hæð, ásamt því að byggingarreitur fyrir tengibyggingu á milli mhl. 1 og mhl. 2 víkur, nýtingarhlutfall og B-rými er leiðrétt í samræmi við gildandi aðalteikningar fyrir Kirkjustétt 4 (mhl. 2) í núverandi stærðartöflu, byggingarreitur fyrir Kirkjustétt 4 (mhl 2) við inngang á deiliskipulagsuppdrætti er leiðréttur, stærðartafla vegna stækkunar á byggingarreit mhl. 1 og aðlögun á B-rými vegna breytingar á svalaskögun mhl 1 er uppfærð og bensínsjálfsafgreiðslustöð mun víkja í nánari framtíð, samkvæmt uppdr. A2F arkitekta, dags. 20. febrúar 2024.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar viðskipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.