Hæðargarður 22
Hæðargarður 22
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1161
4. júní, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er leyfi til þess að byggja geymsluskúr, mhl.02 við lóðarmörk að lóð nr. 20, breyta aðgengi og eignarhaldi sameignar á 1. hæð, innra skipulagi íbúðar 0201, hækka þak og byggja kvisti til norðurs og suðurs, innrétta íbúðarrými í risi og gera svalir á suðurhlið 2. hæðar og rishæðar á íbúðarhúsi, mhl.01, á lóð nr. 22 við Hæðargarð. Mhl.01 - stækkun 1 : 50.7 ferm., 95.1 rúmm. Mhl.02 - stærð: 22.0 ferm., 66.0rúmm Erindi fylgir samþykki eigenda Hæðargarðs 22 og 24, dags. 7. janúar 2023 og yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 14. júlí 1949.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu þar sem um er að ræða breytta skráningu á
fjöleignarhúsi. Fyrir útgáfu byggingarleyfis þarf að berast staðfesting frá eignaskiptayfirlýsanda, á
tölvupóstfang eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is, um að vinna á nýrri eignaskiptayfirlýsingu er hafin.
Eignaskiptayfirlýsingu þarf að þinglýsa fyrir lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.