Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. mars 2024 var lögð fram fyrirspurn Ásgeirs Ásgeirssonar, dags. 23. febrúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands/Sjómannaskólans vegna lóðarinnar nr. 35 við Háteigsveg sem felst í að djúpgámasvæði verði skilgreint, grenndargámar verði færðir og svæði fyrir ofanvatnslausnir verði fært, samkvæmt uppdr. T.ark arkitekta, dags. 23. febrúar 2024. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. mars 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. mars 2024, samþykkt.