Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN043034, með síðari breytingu
BN049040, vegna lokaúttektar þannig að innra skipulagi er breytt á öllum hæðum Íbúðarherbergjum
fjölgað um eitt á hvorri hæð og gluggar fjarlægðir á norður gafli 1. og 2. hæðar, einnig eru áform um
breytta notkun sem gistiheimili dregin til baka og fasteign því áfram skráð sem einbýlishús með
aukaíbúðum og íbúðarherbergjum í húsi á lóð nr. 4 við Ægisgötu.
Jafnframt er óskað eftir því að erindi USK230151 sem samþykkt var 11. maí 2023 verði fellt úr gildi
og að nýr aðalhönnuður verði skráður á málið.
Erindi fylgir umboð frá upphaflegum aðalhönnuði dags. 3. apríl 2024, yfirlit breytinga á afriti
aðaluppdrátta samþykktum 17. maí 2011 og fylgja skýringaruppdrættir l og ll dags. 24. febrúar 2024.