Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. júní 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2024 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús, mhl.01 og hesthús, mhl.02 við Smábýli 12 á landinu Hesthamrar á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt leiðréttri umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. júní 2024.
Leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. júní 2024, lögð fram.Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Kirkjulandi og Smábýli 11. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.