Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. febrúar 2024 var lögð fram fyrirspurn Halldórs Guðmundssonar, dags. 21. febrúar 2024, ásamt bréfi, dags. 21. febrúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hádegismóa vegna lóðanna nr. 2-4 við Hádegismóa sem felst í stækkun lóðarinnar og hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt tillögu THG arkitekta, dags. 21. febrúar 2024. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júní 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júní 2024, samþykkt.